Talað er um að vaxtamunur skapi tekjur, og arð bankana. Þá nefna fréttamenn ekki að bankinn skrifar aðeins töluna, og þykjast lána töluna, Stór hluti af svokölluðum arði, er frá tilbúnum tölum, tilbúnu bókhaldi.
Ríkisútvarpið verður að segja okkur, að arðurinn, vaxtamunurinn var þetta, og skrifaðar tölur þetta.
Svokallaður arður af peningaprentun og vaxtamun, fari allur ég sagði allur í framkvæmdasjóð ríkisins, í að aðskilja umferð á þjóðvegum, og byggja tvíbreiðar brýr, grafa jarðgöng.
Arðurinn fari í að grafa jarðgöng á milli byggða, alls ekki grafa göng til að tengja óbyggðir saman. Það skiptir máli að gangamunar þjóni byggðunum.
Skólarnir verða að kenna sanna fjármálastjórn, sanna peningasköpun, og þá bókhaldið sem við köllum peninga.
Hví skildum við gefa víxlurunum leyfi til að skapa bókhaldspeninga og að þeir eigi þá?
Ekki láta spila með okkur áfram.
Ríkið getur átt félag, sem á og stýrir bönkunum eða hvert það rekstrarform sem hentar.
Egilsstaðir, 14.04.2019 Jónas Gunnlaugsson