Quantcast
Channel: Jónas Gunnlaugsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 1031

Þegar börn ráðast á sér greindara barn á skólalóðinni erum við að vissu leyti að horfa upp á svipaðar kenndir og í sínu uppmagnaðasta og ljótasta formi valda þjóðarmorðum.

$
0
0

Forvitnilegt

Það væri gaman að hafa nafn höfundar.

Þetta er hluti af athugasemd sem var á bloggi á netinu.

Hver er höfundurinn?

000

.... ranghugmynd að námsárangur sé beintengdur greind. Meðalgreindir og rétt þar yfir standa sig yfirleitt best í námi. Hlutfall ofurgreindra er hlutfallslega lágt í háskólanámi, en fólk um og rétt yfir meðalgreind 100-120 stig er algengt í háskólanámi. Vegna þess meðalgreind börn eru líkari öðrum börnum standa þau oft betur að vígi félagslega og standa sig því betur í skólanum, en ofurgreindir, rétt eins og greindarskertir, verða frekar fyrir stríðni, nema þeir búi yfir nægri félagsfærni til að dulbúast í heimi sem heimtar allir séu eins. Góður námsárangur er næstum alltaf afleiðing væntinga foreldra og innrætingar sem kemur frá þeim, oftar en ekki með stuðningi við heimanám og fleira. Þetta er eina ástæða þess börn fátækra einstæðra mæðra, sem ekki hafa tíma og ráðrúm til að hjálpa þeim við námið, standa verr að vígi í náminu, alveg eins og börn innflytjenda sem ekki hafa tök á að hjálpa við heimanámið út af tungumálaörðugleikum (en meðalgreind Pólverja er til að mynda talsvert hærri en Íslendinga og þó standa pólsk börn verr að vígi í námi hér). Námsárangur og greind fara heldur alls ekki alltaf saman. Mjög greind börn eru ekki líkleg til að sinna náminu mikinn áhuga, því það samsvarar ekki þeirra þroskastigi og þau hafa því eðlilega lítinn áhuga á því, alveg eins og 10 ára barn hefur oftast ekki mjög gaman af því að leika í dúpló allan daginn....  ....Ef þú skoðar félag ofurgreindra, þá kemstu að því að flest greindasta fólk heimsins sinnir láglaunastörfum. Einn greindasti maður heims keyrir til dæmis strætó. Skólakerfið er sniðið að meðalgreindum meðalmönnum og að snillingar eins og Einstein (sem var einmitt dæmdur snemma sem afspyrnulélegur námsmaður og vonlaus í stærðfræði) komist í gegnum það er undantekning. en ekki regla. Þetta er jú galli lýðræðisins, þeir "venjulegu" (miðlungsmennirnir) hafa meira vald en hinir og sníða samfélagið að sjálfum sér en taka ekki tillit til minnihlutahópa, minnimáttar né afburðarfólks. Ég hef stundað háskólanám víða og sjaldan rekist á ofurgreint fólk. Hins vegar hef ég hitt nokkra slíka einstaklinga sem enga skólagöngu höfðu að baki og gekk alls ekkert vel í lífinu. Nútímasamfélag er að verða sífellt einsleitara og því líklegt að tækninni fari aftur og uppfinningarsemi og sköpun mannsins, því þeir sem eru á einhvern hátt öðrum fremri fara sífellt meira halloka. Breytir þar engu hvort um er að ræða einstaklinga, þjóðfélagshópa, þjóðflokka, eða þjóðir. Þeir greindustu standa að mörgu leyti verst að vígi, og hafa alltaf gert það. Það getur jafnvel verið lífshættulegt að vera of greindur ef aðrir unna þér því ekki, heldur öfunda þig. Sagan af annarri heimsstyrjöldinni er gott dæmi um slíkt, en Evrópskir gyðingar mælast langgreindasti hópur jarðarinnar, og, ólíkt mörgu öðru greindu fólki, hefur heldur enginn afrekað meira í vísindum og fræðum hvers konar. Þegar börn ráðast á sér greindara barn á skólalóðinni erum við að vissu leyti að horfa upp á svipaðar kenndir og í sínu uppmagnaðasta og ljótasta formi valda þjóðarmorðum.

R (IP-tala skráð) 10.11.2013 kl. 05:52

000

Baráttan í veröldinni

Jónas Gunnlaugsson | 12. nóvember 2013

Greind

Jónas Gunnlaugsson | 10. nóvember 2013

Egilsstaðir, 02.09.2016  Jónas Gunnlaugsson


Viewing all articles
Browse latest Browse all 1031